| Domain Info
|
|---|
| |
| Map
|
|---|
| |
| AboutUs Badges
|
|---|
![]() |
Title edit
Fljótsdalshérað [www.egilsstadir.is]
Description edit
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til 1. nóvember 2004, við sameiningu Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Fljótsdalshérað er fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi með um 3500 íbúa og þar af búa ríflega 2100 manns í þéttbýlinu á Egilsstöðum og í Fellabæ sem er stærsti þéttbýliskjarni á Austurlandi. Þéttbýlið styður sterk byggð í dreifbýlinu með blómleg landbúnaðarsvæði og smærri þjónustukjarna á Hallormsstað, Eiðum og Brúarási.
Fljótsdalshérað býður upp á fjölda möguleika til búsetu, fjölþætta samfélagslega þjónustu og fjölskylduvænt umhverfi. Velja má um búsetu í þéttbýliskjörnunum á Egilsstöðum og í Fellabæ, í smærri þjónustukjörnum á Hallormsstað, á Eiðum og í Brúarási, eða í blómlegum sveitum héraðsins. Íbúaþróun er jákvæð, uppbygging er hröð og ný svæði í boði fyrir íbúða- og atvinnuhúsnæði.
Möguleikar til menntunar á Fljótsdalshéraði eru góðir, þar eru fimm leikskólar, fjórir grunnskólar, þrír tónlistarskólar, hússtjórnarskóli, menntaskóli og góð aðstaða til fjárnáms á háskólastigi. Aðstaða til íþróttaiðkunar er mjög góð, hægt að velja um fjögur íþróttahús og þrjár sundlaugar, þar er glæsilegur íþróttaleikvangur, skemmtilegur golfvöllur og góð aðstaða fyrir hestamenn.

